Færsluflokkur: Bloggar

Við þurfum réttarkerfi til að takmarka afbrot en hver á að borga ?

Í knattspyrnu er talað um að elta eigi boltann í stað þess að elta manninn. Í rannsóknum fjárglæpamála er talað um að árangusríkast sé að elta slóð fjármuna. Í Al Thani málinu má í vissum skilningi segja að verið sé að elta mennina. Hefði ekki mátt sekta stjórnendur bankanna og bankana sjálfa og þannig innheimta hluta af þýfinu til baka ? Mér er engin þægð í því að loka einhverja menni inni sem hafa stolið pengingunum mínum og halda þeim uppi í fullu fæði og húsnæði í einhver ár með ærnum kostnaði og að refsidvöl lokinni kom þeir út í samfélagið með fullar hendur fjár og fullir hefnigirni og fullnuma í enn hættulegri glæpum.  Látum mennina og bankana sem voru gerendur í bankahruninu sem hafa auðgast á misferlum borga til baka það sem þeir með ófrjálsri hendi hafa stolið. Svo mætti einnig spyrja hvort ekki sé sanngjarnt að þeir borgi húsaleigu og fæði ásamt gæslu meðan á fangelsisvist stendur ? Er ekki mesta refsingin hjá þessum mönnum og hjá bönkunum þegar hreyft er við peningunum þeirra ?  Aðrar þjóðir virðast einbeita sér að sektum meðan við hlaupum í manninn. Ég er sammála Evu Joly að við eigum að auka framlög til sérstaks saksóknara og sérstakur bankaskattur á að standa undir þeim framlögum.


mbl.is „Mjög gott fyrir lýðræðið á Íslandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upprætum spillingu í kringum "lögfræðistörf" í tengslum við slitastjórnir

Það þarf að setja skýrari reglur varðandi starfshætti slitastjórna. Það er ótækt að engin tímamörk séu sett á starfstímann og einnig er ótækt að slitastjórnir geti haft sjálftöku um laun sín og kjör. Lausnin gæti verið fólgin í því að útbúa sérnám fyrir þá sem taka að sér hlutverk slitastjórna og hafa aðgengi að því námi fyrir ýmsar tegundir grunnmenntunar. Með því að bjóða út verkefni slitastjórna og hleypa öðrum starfsstéttum að borðinu þá er hægt að lækka stóran útgjaldalið sem er kostnaður vegna sjálftöku lögfræðimenntaðra slitastjórna. Á sviði tækni og viðskipta er boðið upp á ýmis konar stutt nám sem gefur hin fjölbreytilegustu réttindi eins og á sviði fasteignasölu, bílasölu og verðbréfsölu. Einnig má nefna nám í tengslum við matsgerð fasteigna, trygginga o.s.frv. Hvers vegna hefur ekki verið hægt að búa til sérnám í kringum starfssemi slitastjórna ? 
mbl.is Dómur Hæstaréttar engin tíðindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Jón Egill

Höfundur

Jón Egill
Jón Egill
Er menntaður í stefnumótun og árangursstjórnun frá HÍ og háskólanum í Árósum í Dk. Hef áhuga á þjóðfélagsmálum og ber þá von í brjósti að okkur Íslendingum takist að byggja upp samfélag þar sem einstaklingurinn hefur rýmd til athafna og þroska. Við þurfum samfélag sem leggur rækt við" ríkið" og eflir lýðræðið þar sem einstaklingar taka þátt og eru spurðir oftar en á fjögurra ára fresti.
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband